Bæklingur
Setur hagnýtrar jákvæðrar sálfræði
Barbara Fredrickson: "Broaden and build theory"
>skoða
Anna Jóna Guðmundsdóttir
Almenn umfjöllun
> skoða
Þjónusta
Hvað gerum við fyrir þig?
Hamingjusamari.is
Um fyrirtækið
Anna Jóna
Stefna
Með starfi mínu vil ég stuðla að því að sem flestir nái að blómstra og sjá tilgang í lífi sínu.
Með það markmið í huga mun ég sérstaklega einbeita mér að því að kenna jákvæða sálfræði með fyrirlestrum, námskeiðum og þjálfun.
Gildi
Nokkur fyrirtæki og stofnanir sem nýtt hafa sérþekkingu mína:
CCP :: Domus Dentis :: Félagamálaskóli alþýðu :: Félag geislafræðinga :: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti :: Félag snyrtifræðinga á Íslandi ::
Leikskólar Hafnarfjarðar- Hlíðarberg :: Landsvirkjun :: Landsnet :: Listaháskóli Íslands :: Neskirkja :: TM :: Rafiðnaðarsamband Íslands ::
Verzlunarskólinn :: VR :: Snyrtistofan Terma :: Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi :: Ölgerðin
Starfsferill
Fyrirlestrar námskeið og vinnustofur um jákæða sálfræði frá 2008
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 2000- nú
Framhaldsskólinn á Húsavík 1999-2000
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 1998-1999
Námsferill
Háskóli Íslands: Framhaldssám í Náms- og kennslufræði áætluð útskrift vor 2011
Háskólinn á Akureyri: Kennsluréttindanám 2000
Háskóli Íslands: Ba. próf í sálfræði 1996
Anna Jóna Guðmundsdóttir | Eigandi
Ég vinn með hagnýta jákvæða sálfræði og sérhæfi mig í fyrirlestrum og námskeiðum um hamingju fólks og styrkleika. Á spennandi og einfaldan hátt leiði ég fólk inn í hamingjusamari heim með hjálp nýrra rannsókna í jákvæðri sálfræði, bæði hvað varðar einstaklingsbundna hamingju, samskipti og vinnusálfræði.
Hamingja og jákvæð sálfræði
Hamingja skiptir máli. Rannsóknir sýna að hamingjusamt fólk nýtur meiri velgengni og lifir lengur. Jákvæð sálfræði er ný grein innan sálfræðinnar sem fjallar um hvað verður til þess að fólk og stærri samfélög blómstra, öðlast hamingju og lífsfyllingu.
Halldór S. Kristjánsson | Markaðssetning
Ég sé um markaðsetningu Hamingjusamari.is, auglýsingagerð og vefsíðugerð.
Vinnustofur
Sérsvið Hamingjusamari.is er vinnustofur í fyrirtækjum og stofnunum, þar sem farið er yfir nýjustu rannsóknir í jákvæðri sálfræði. Miðað er við að í hverri vinnustofu fái starfsmenn tækifæri til að átta sig á eigin styrkleikum og læri áhrifaríka aðferð til finna styrkleika hjá sjálfum sér og öðrum.
Við erum sérfræðingar í að leggja fyrir Realise 2 styrkleikaprófið. Realise 2 er þróað af sérfræðingum CAPP og er byggt á viðamiklu rannsóknarferli á því hvenig styrkleikar byrtast.
Það sem er sérstakt við Realise 2 er að það greinir styrkleika eftir þremur víddum, frammistöðu, orku og notkun.
Efnistök vinnustofu
Hamingja í nýju ljósi, gildi jákvæðra tilfinninga, hvernig á að stuðla að þeim og öðlast jákvætt hugarfar. Farið yfir aðferðir til að þekkja styrkleika, veikleika og muninn á því sem fyllir okkur orku og því sem dregur úr okkur orku. og styrkleika, Verkefni á námskeiðinu miða við að þátttakendur öðlist nýja sýn og betri á eigin möguleika til að hámarkað þætti sem veita ánægju, fylla viðkomandi orku og auka árangur í lífi og starfi .
Í seinnihlutanum er áhersla á samskipti og hvað einkennir hamingjusama vinnustaði. Árangursríkar leiðri að jákvæðri samvinnu og að vinnustaðir hafi rannsóknir á því hvað skiptir máli á góðum vinnustað. Farið yfir hvað einkennir jákvæða leiðtoga, og hvaða þættir stuðla að hamingju í vinnu og hvernig er hægt að stuðla að eigin hamingju og annarra í vinnuni.
Efnistök eru sniðin að þeim hópi sem um er að ræða hverju sinni og áhersla lögð á að efni námskeiðisins nýtist sem best í starfi hvers og eins og fyrirtækisins í heild
Eftir vinnustofu ættu þátttekandur að hafa öðlast nýja sýn á eigin styrkleika
Ráðgjöf
Stjórnendamarkþjálfun
Ráðgjöf við mannauðsstjórnun
Einstaklingum og stjórnendum býðst þjálfun á grundvelli styrkleikamats varðandi nýtingu styrkleika til að takast á við áskoranir í lífinu og blómstra. Þjálfunin byggist á því nýjasta í jákvæðri sálfræði. Þjálfunin er einstaklingsmiðuð og leitast ég við að hafa hana uppbyggilega og skemmtilega. Mikilvægt er að finna stað og stund sem hentar hverjum og einum.
Jákvæð sálfræði stuðlar að því að hver og einn starfsmaður njóti sín til fulls og samskipti á vinnustaðnum verði betri.
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar eru eftir óskum um ákveðin efni, stjórnun, hamingju, hugarfar á vinnustað, styrkleika, samskipti eða um hvernig eigi að ná persónulegum þroska.
Ein af mínum sterku hliðum er að halda fyrirlestra, ég hef mikla ánægju af því að koma fram og segja frá jákvæðri sálfræði í stuttu og hnitmiðuðu máli. Þó að um stuttan fyrirlestur sé að ræða legg ég áherslu á virkni áheyrenda. Ég fjalla sérstaklega um styrkleika og helstu leiðir til að öðlast hamingju í starfi og einkalífi. Ennfremur dreg ég saman eftir því sem við á það nýjasta og markverðasta í jákvæðri sálfræði.
Hægt er að sniða lengd fyrirlestra að þörfum fyrirtækja, en oft er miðað við 1-3 klst.
Námskeið
Námskeið eru haldin á vegum hamingjusamari.is. Þau henta vel fyrir vinnustaði og skóla, stjórnendur,
verkefnisstjóra eða aðra sem vilja bæta sig í starfi og einkalífi.
Við eru með 6 vikna námskeið í boði eftir samkomulagi en einnig eru styttri námskeið sem eru auglýst sérstaklega. Námskeið eru sniðin að þörfum viðskiptavina.
Upplýsingar
Anna Jóna Guðmundsdóttir, styrkleikamarkþjálfi
Sími: 690-0310, 551-1004
Mail: annajonag_gmail.com
Halldór Snær Kristjánsson, markaðsetning og heimasíða
Sími: 848-1463
Mail: dorisnaer_gmail.com
"Breikka og byggja" Barbara Fredrickson 27.07.10
Breikka og byggja kenningin gengur út að að jákvæðar tilfinningar svo sem gleði og ánægja og jafnvel líka áhugi og spenna, auki meðvitund og ýti undir nýstárlegar og rannsakandi hugsanir og gjörðir. Með tímanum leiða þessar jákvæðu hugsanir og gjörðir til þess að færni og úrræði aukast. Sem dæmi má nefna að forvitni um landslag verður til með tímanum að mikilsverðri þekkingu um heiminn, ánægjuleg kynni við ókunnuga manneskju leiða til vináttu og svo framvegis.
Barbara Fredrickson sem setti fram kenninguna er með áhugaverða heimasíðu þar sem hægt er að taka próf sem mælir hlutfall jákvæðar og neikvæðra tilfinninga. Samkvæmt kenningunni er æskilegt hlutfall 3/1 . Fleiri jákvæðar tilfinningar eyða út áhrifum neikvæðra tilfinning og hjálpa fólki til lengri tíma þó að neikvæðar tilfinningar séu eðlilegur hluti af lífinu og nauðsynlegar líka í lífsbaráttunni.
Gott ráð er að fólk taki positivityratio prófið á hverjum degi í hálfan mánuð og haldi dagbók á sama tíma til átta sig á þeim tilfinningum sem eru til staðar.
fsafsdfsdfs
Robert talar um afhverju styrkleikar skipta okkur máli.